Þægileg þráðlaus ryksuga frá Swan. Powerflush Turbo þráðlausa ryksugan fékk eina hæstu einkunn sem “Good Housekeeping” hefur gefið. Ummælin voru að hún er sérlega hljóðlát og auðveld í notkun. Hefur góðan sogkraft og hentar einstaklega vel fyrir gæludýrahár.
Þægileg þráðlaus ryksuga með góðan sogkraft og endingargóða 21.6V Lithium-ion rafhlöðu. Ein hljóðlátasta ryksugan á markaðnum. Hausinn er með Led ljósi og er sérstaklega hannaður til að komast undir húsgögn. Hentar vel fyrir parket, flísar og teppi. Auðvelt er að breyta henni í handryksugu fyrir bílinn o.fl. Aðeins 2,4kg að þyngd
- Þráðlaus skaftryksuga
- Afar hljóðlát
- Þyngd 2,4kg
- Snúningshaus með Led ljósi
- Auka haus hannaður fyrir teppi
- Rafhlaða – 21.6V Lithium-ion
- Rafhlöðuending – upp að 22 mínútur
- Hleðslutími rafhlöðu – 3,5klst